Bjuggust menn við öðru ?

Alltaf sama silkihanskameðferð sem Liverpool fær, sennilega vorkenna menn þeim bara enda gengur ekkert hjá liðinu. En ef þetta væri alvöru lið þá hefði viðkomandi leikmaður verið dæmdur í langt leikbann, enda er þetta ekkert annað en árás sem á ekki að sjást í fótbolta.... sama í hvað liði maður er
mbl.is Gerard sleppur við leikbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spaugstofan ?

Er þetta Fitch dæmi ekki í ruslflokki sjálft, lögin eru ennþá í gildi þó svo að forsetinn hafi ákveðið að skrifa ekki undir. Ekkert breyst nema forsetinn skrifaði ekki undir, hver eru þá rökin fyrir því að breyta matinu ?
mbl.is Fitch: Breyting til batnaðar ekki útilokuð en horfurnar slæmar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já sæll - steinar úr glerhúsi hvað ?

Held að ef hann vill nota líkinguna við bændastéttina og verkefni sem menn fást við þar, þá held ég að hann fengi sekt fyrir girðinguna sem hann ætlaði að slá upp í kringum húsin ( Skjaldborgin í kringum heimilin ) hún heldur engu.

Svo miðað við álögur, í stað meiri niðurskurðar á óþarfa ríkisútgjöldum, á lítilmagnann þá yrði búið tekið af honum og hann fengi svona 80þúsund í sekt eins og bóndinn þarna sem var í fréttum um daginn og var kærður fyrir dýraverndarsamtökum.

Tala nú ekki um öll loforðin sem hafa verið svikin - td allt uppi á borði en Æseif og leynimakkið í kringum það er bara brandari í kjölfar þeirra yfirlýsinga.

Af nógu er að taka og efast ég ekki um að enginn stjórnmálamaður í sögu lýðveldisins hafi snúist jafn hratt frá hugsjónum sínum á einu augabragði eins og Steingrímur búskussi. Jafnvel Ragnar Reykás er staðfastari og heldur sig við sín prinsipp Wink

 


mbl.is Tók við af „búskussa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég skil ekki ..

enda ekki vanur að drekka með fulltrúum ölþings.

En hvað er málið hérna, til hvers þarf að lækka upphæðina að áætlun um útgjöld ? 

Hvernig var þá fyrr talan fundin út, hefur alltaf verið ofáætlað í þennan lið fjárlaga, hefur ellilífeyrisþegum fækkað svona rosalega að það þarf að færa upphæðina að því eða ????

Getu einhver túlkað þessi orð hæstvirts félagsmálaráðherra ?

 

Nánar að ölþingi, get ekki annað en verið ósammála þeim sem hafa tekið upp hanskann fyrir fyllerí á ölþingi gamla virðingarstofnunin sem eitt sinn hét alþingi ef einhver er að velkjast í vafa Wink

Mér finnst fyrir neðan öll velsæmismörk að þingmenn séu að mæta í glasi í vinnuna, held að það sé ekki vinsælt á öðrum vinnustöðum að menn komi glaseygðir og angandi af vínlykt í vinnuna. Sé fyrir mér kassafólkið í Bónus angandi af bjórlykt við kassann. Tala nú ekki um ráðherrabilstjórana, er í lagi að þeir skelli í sig einum öllara með hádegismatnum og renni svo og skutli ráðherra á næsta áfangastað ?

Er í lagi að kennarar fái sér einn bauk með matnum í mötuneytinu og fari svo að kenna ?

Hvað bull er í gangi ??


mbl.is Vasapeningar ellilífeyrisþega skertir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er svo mikil snilld

Þetta er gargandi snilld eins og sagt er. Snilldin fellst í því að blessuð skjaldborgin um heimilin sem var boðuð af stjórnarliðum, hefur breyst í skuldafangelsi.

Eitt af merkustu verkum Árna Páls var að lengja í bílalánunum um 3 ár - kallað því flotta nafni greiðsluaðlögun ! Því hlýtur að vera mjög auðvelt fyrir okkur að skipta yfir í  vistvænni ökutæki ekki satt ? 

Sé það ekki alveg gerast að ég skipti í rafmagnsbíl fyrr en að 6-7 árum liðnum þegar ég er búinn að borga svona um 8-9 milljónir í viðbót við þær tæpu 2 sem ég hef þegar borgað af bílaláninu (tæpar 3 millur í upphafi) . Ef allt gengur upp samkvæmt greiðsluaðlögun Árna Páls þá tekur fjármögnunarfyrirtækið bílinn þá og því rafmagnsbíll næsti kostur - svo einfalt og gott Smile

En eigum við skuldarar landsins að láta traðka á okkur endalaust, hvar eru þeir sem stóðu fyrir öllum mótmælafundunum og létu sem hæst á Austuvelli ??


mbl.is Mengunarskattur á bíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ubunto er ókeypis sem og OpenOffice

Skora á fólk að kynna sér Ubuntu stýrikerfið ( linux ) sem kostar ekki neitt og er komið í notkun hjá VMA á Akureyri. Einnig er OpenOffice skrifstofuvöndullinn frábær - gefur Office frá Microsoft lítið eftir og kostar ekki krónu.

 

  • http://www.ubuntu.com/
  • http://www.openoffice.org/
  • http://www.openoffice.is/  - leiðbeiningar um notkun

mbl.is Windows 7 kostar um 20.000
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur þetta þá ekki upp í skuldir hans við íslensku þjóðina

Hann hlítur að skella þessu krónum upp í Icesave - ef hann hugsar um Icesave á hverjum degi eins og hann sagði ef ég man rétt í viðtali. Nú er honum í lófa lagið að hækka sig aðeins í álíti og borga aðeins upp í eigið klúður sem eigandi bankans.
mbl.is Novator selur 20,11% hlut í Amber Sports
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki hægt að fá Davíð Oddsson aftur ?

Hvaða veruleikafyrrtu menn "búa" núna í seðlabankanum ? Er ekki málið að fá Davíð aftur ?
mbl.is Seðlabankinn einangrar sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjaldþrota flokkar

Sé ekki betur en flestir flokkarnir séu "tæknilega" gjaldþrota, og fólkið sem getur ekki stjórnað flokkunum betur er að sækjast eftir því að fá að stjórna landinu.

Kíkið á stöðu þeirra flokka sem nú eru við völd eru með eigið fé neikvætt um rúmar 25 milljónir.... já og þetta varð til í góðærinu - gott að þessir flokkar eru að sýna ráðdeild og lengja í snörunni sem þrengist um háls heimila landsmanna og ekkert bólar á blessaðri skjaldborg sem slá átti í kringum heimilin í landinu. Er ekki Samfó með slagorðið orð skulu standa .... best að þeir drífi þá í því að koma upp skjaldborg.


mbl.is Flokkarnir skulda hálfan milljarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sá besti !

Engum blöðum um það að fletta að Ferguson er sá besti, er Móri krónprinsinn ?

Segi fyrir mig að ég held að Móri hafi allt sem þarf til að taka við af Ferguson, svo er annað mál hvort hann vilji það. En eitt er á hreinu að sá sem tekur við tekur við fær erfitt verkefni.

Man alltaf eftir því þegar ég hitti Ferguson þegar hann var búinn að vera í 9 ár og sagðist bara vera með eina ósk og hún væri sú að hann yrði í 10 ár í viðbót og mér hefur orðið að ósk minni Wink


mbl.is Ferguson mælir með Mourinho
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband