Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Til hamingju ísland

Er ekki við hæfi að óska þjóðinni til hamingju með strákana okkar, glæsilegt að sjá alla sem mættu og hylltu þá í dag. Alveg frábært hjá þeim sem skipulögðu móttökuna alveg frá yfirfluginu og niður Skólavörðustíginn og niður á svið. Eitt fannst mér að vísu að hefði mátt missa sín, það voru allir stjórnmálamennirnir. Voru þeir ekki flestir búnir að hitta þá áður þarna á einhverjum ..stöðum eða húsi (man ekki hvað það heitir ) í nágrenninu. Til hvers að fá nýjan borgastjóra uppá svið sem og hina stjórnmálamennina.

Vantaði svo alveg að sjá gömlu handboltakempurnar syngja lagið, ég sá þá í að minnsta ekki í sjónvarpinu.. En hvað um það þetta var frábært og strákarnir áttu þetta sannarlega allt skili sem og að verða fálkar og Óli yfirfálkann Smile

Til hamingju ísland

 


Ha - 50 millur

Mér dettur varla í hug að HSI hafi sent landsliðið á leikana án þess að eiga krónu fyrir því, en miðað við þær safnanir sem hafa verið í gangi þá læðist nú að manni sá grunur. Enda er sagan ekki hliðholl handknattleikssambandinu, man ekki öll þau skipti sem það hefur þurft að safna fyrir þá. Á meðan eru önnur sérsambönd að draga lið úr mótum vegna peningaskorts, þar eru menn að sýna ráðdeild en ekki eyða um efni fram. 

Finnst þetta skjóta svolítið skökku við, í raun verið að verðlauna HSI fyrir að veðja á árangur á leikunum skítt með þó að það kosti eitthvað því þeim verður reddað. Eiga hin sérsamböndin að gera slíkt hið sama ?

Þekki vel til í rekstri og peningaleysi hjá íþróttafélögum þar sem menn hafa verið að hætta að vera með rassvasabókhald og vinna hlutina af fagmennsku og halda sig við fjárhagsáætlanir og draga úr umsvifum þegar ekki eru til peningar. 

Þess vegna er ansi skrítið að menntamálaráðherra og um leið íþróttamálaráðherra klappi HSI á bakið fyrir þetta, svolítið röng skilaboð finnst mér.

En ekki misskilja mig, ég gleðst svo sannarlega yfir þessum árangri og strákarnir eiga allt gott skilið.


mbl.is HSÍ fær 50 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

virkar ekki - netlýsingin

Eru ekki fleiri sem fá þetta ekki til að virka í FireFox ?
mbl.is Wigan - Chelsea, bein lýsing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

tap tap og aftur tap

Þoli ekki að tapa svona oft - handboltinn, formúlan... eins gott að mínir menn séu ekki að spila í enska í dag.....................Frown
mbl.is Massa ók eins og meistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nótt strax í Reykjavík ?

Er farið að dimma svona snemma ? Kominn nótt þegar þessi frétt er skrifuð um 15:11, eða hefur kannski bara verið dregið fyrir gluggann á ritstjórn mbl.is GetLost

Er ekki nær að fara að kalla þetta menningardag ? - ef ég hef tekið rétt eftir þá hætta herlegheitin um 11 í kvöld, kannski nær þá að hafa þetta menningarkvöld ..................


mbl.is Minkur skoðar menningarnótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosinn fyrir flokk sem er í meirihlutanum en vinnur með minnihlutanum

Ætlar þessi blessaði farsi aldrei að enda Smile

En ömurlegt er nú siðferðið hjá henni, snýr baki við þeim sem kusu hana og fer til starf sem óháð en samt með minnihlutanum í borgarstjórn. Er ekki kominn tími á að stoppa svona vitleysu og menn bara hætti en fari ekki að starfa sem óháðir eða bara fara í annan flokk þó svo að þeim sinnist við einhvern úr flokknum sínum.

Svo ætlar Gísli Marteinn að sinna borgarstjónarsetu í fjarvinnu - ótrúlegt bara 

Svo finnst sumum stjórnmála mönnum  skrítið að almenningur sé að missa tiltrú á þeim og áhugi á stjórnmálum dali LoL


mbl.is Marsibil segir sig úr Framsóknarflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband