Slappur verkstjóri

Þetta kallar maður nú slappa verkstjórn, Framsókn les um það í blöðunum að það eigi að halda fund við einhverja styttu og kynna sáttmálann án þess að þeir hafi lesið hann yfir. Fleira skrautlegt hefur verið í verkstjórn þess sem stýrir þessu - eða eru það nokkrir sem gera það ??

Ekki til að auka traust á sundrungsfylkingunni sem sýndi það í aðdraganda stjórnarslita að verkstjórnin þar á bæ var engin - hvert félagið á fætur öðru sagði samstarfið dautt meðan verkstjórinn brosti í viðtölum og sagði allt í góðu.

Vona samt að þetta takist á morgun ef ekki þá á að drífa í að skila umboðinu/verkstjórninni og mynda utanþingsstjórn myndaða af sérfræðingum... og helst hafa sem mynnst af hagfræðingum í henni því þeir eru úti á túni. Það er miklu meira að marka langtímaspár veðurfræðinga en það sem hagfræðingar segja að muni gerast. Ótrúlegt hvað eitt nám hefur gjörsamlega gengisfallið undanfarna mánuði, stundum heldur maður að flestir hagfræðingarnir hafi fengið gráðurnar sínar í seríos pakka eins og það er kallað Grin

En annars er ég með það á tæru hvað veldur þessari fjármálakreppu sem geisar um allan heim ....

Excel 2007 - nær væri að fjármálageirinn notaði OpenOffice traust og snilldar pakki og kostar ekki neit Tounge


mbl.is Stjórnin mynduð á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband