Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Ha - aftur ?

Skoraði Venni Rún aftur ? Sá ekki leikinn enda að sinna mikilvægari málefnum en að horfa á sjónvarpið. Var í hringrásinni minni sem felst í því að vera nærri fljótari að sofna en Rebekka, þegar ég fer að svæfa hana. Svo sefur maður í svona 2 tíma og vaknar alveg eld hress eftir 22 og búinn með nætursvefninn og ef maður lætur sér detta í hug að reyna að sofna aftur þá gengur það ekki upp. Þá er bara að velja á milli þess að hanga aðeins í tölvuni og reyna að vinna smá eða liggja uppi í rúmi og svekkjast á því að maður getur ekki sofnað. Þetta svefnleysi leiðir svo til þess að næsta kvöld þegar ég fer að svæfa þá er maður ennþá syfjaðari og pottéttara að maður sofnar í miðri "svæfingu"  og þannig heldur hringrásinn áfram  Sleeping

En varðandi Venna Rún þá virðist sem njósnavélin ( sjá færslu mína ) sem fór yfir Carrington æfingasvæðið hafi vitað til þess að Venni hafi verið að æfa það að skora mark í það minnsta hefur kappinn bara skorað í 2 leikjum í röð eftir mikla eyðurmerkugöngu og markaþurrð. Það er bara hið besta mál og sannar enn einu sinni að ég hef ekkert vit á fótbolta, jú nema það að hafa valið að halda með réttu liði þegar ég var um átta ára gamall.


mbl.is Man.Utd skellti Watford
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ansk... jákvæðni

er þetta hjá meðbloggurum, ég get bara ekkert fundið neitt jákvætt við tapið í gær, við vorum svo nálægt því að sigra. Það er fátt ömurlegra en að tapa fyrir norðurlandaþjóðum, og sérstaklega Dönum.

Ég er hins vegar sammála þeim sem eru að hrósa strákunum okkar - já þeir eru það vonandi ennþá hjá öllum. Þeir stóðu sig rosalega vel en ég veit að það slær ekkert á gremjuna með tapið hjá þeim. Snorri Steinn orðaði þetta best í einhverju viðtalinu að það skipti engu máli þó að hann hafi átt stórleik, þeir hefðu samt tapað.

Vona samt að þegar lengra líður frá þá lagist þetta því einhver sagði einhverntímann að tíminn lækni öll sár.


Voru ekki allir að skúra ?

Ég get varla verið einn um að hafa tekið mig til og skúrað gólfin hérna þegar mesti hamagangurinn var í leiknum ? - Gat bara ekki setið rólegur við sjónvarpið og dreyf mig bara í því að gera eitt það leiðinlegast sem mér datt í hug, skúra !

Var búinn að skella í þvottavélina og svo þaðan í þurrkarann og svo aftur meira í þvottavélina og ..... eins gott að þessum handboltaleikjum fari að ljúka annars veit ég ekki hvað ég get farið að stússa í framhaldinu.

Alveg merkilegt að af þremur vinsælustu íþróttunum ( fótbolti, karfa, handbolti ) eru landsleikir í handbolta þeir einu sem fara gjörsamlega með taugarnar hjá mér. Í fótbolta og körfu er ég yfirleitt salla rólegur - OK ekki alveg rólegur kanski en finn enga þörf að fara að skúra.

Er sam viss um að húsfrúin á heimilinu er ekkert ósátt við að það verði fleiri spennandi útsendingar á handbolta á næstuni.


mbl.is Draumurinn úti í Hamborg - Danir sigruðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fuglaflensa og sykursýki

Það er alveg ótrulegt að fylgjast með öllu fárinu yfir þessum fáu hræðum ( ekki að gera lítið úr því samt) sem hafa greynst með fuglaflensuna en svo er margfalt útbreiddari faraldur í gangi og menn vita varla af því í fjölmiðlum og annarstaðar.

Sykursýki er á flugi heldur betur þessi misserin og ótrúlega margir sem greynast með hana í heiminum á hverri sekúndu, sennilega tekur svona 20 sek að fylla kvóta þeirra sem hafa fengið fuglaflensuna.

Sykursýki verður líka æ algengari hérna, og skora ég á menn að fylgjast með þessum einkennum:

Einkenni
Einkenni sykursýki af gerð 2 geta verið lúmsk. Helstu einkennin eru:

Þorsti
Tíð þvaglát
Sjóntruflanir
Kláði í nára eða fótum
Þreyta

Ef þú kannast vð 2 eða fleiri einkenni endilega kíktu fjótlega við hjá heimilislækninum þínum og láttu mæla blóðsykurinn.


mbl.is Tíðni sykursýki í New York að faraldursmörkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það mátti reyna

Að afsaka sig á þessum nótum, væri gaman að sjá yfirlit frá lögregluni yfir skíringar sem menn gefa á umferðarlagabrotum sínum. Var að vinna með einni "frú" sem var stoppuð af lögregluni við það að mála sig á fullri ferð í Ártúnsbrekkuni. Hún var nú frekar fúl yfir því að þeir væru að stoppa sig hún væri auðvitað ekki að mála sig for the fun, hún væri þegar orðin of sein og þeir gerðu bara íllt verra.


mbl.is Steig óvart á bensíngjöfina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laus við kvefið ?

Þetta er stórfrétt, hvað hafa menn ekki reynt til að losna við kvef ? Aðferðirnar minna stundum og konur sem liggja með maska og grúkusneiðar á andlitunu Smile Heitt allt, hunang, c-vítamín og bara látta þér detta það í hug menn hafa prufað það. Svo eru menn að anda að sér gufi og fleira og fleira en engum hefur sennilega dottið í hug að Þorskurinn væri lausnin á kvefinu - Dr Jón Bragi hlýtur að komast nálægt Nóbelsverðlaunum ef þetta gengur allt eftir sem maður vonar auðvitað. Ef þetta er ekki nóg þá er líka verið að tala um að þróa þetta til að vinna á fuglaflensu sem betur fer hefur ekkert orðið af.

Verður Nobellinn okkar og komumst við í úrslit HM ?


mbl.is Íslenskt lyf gegn fuglaflensu og kvefi væntanlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klúður í skipulagi á HM

Alveg ótrúlegt að vera búnir að selja nánast alla miðana á leiki í 8-liða úrstlitum löngu áður en ljóst er hvaða lið spila þá. Þetta er bara vatn á milli miðaokrara sem selja miðana á uppsprengdu verði, ljóst að það þarf að endurskoða reglurnar. Nær væri að hafa umþaðbil helming miðana á lausu og bjóða sambanöndum viðkomandi landa helming af þeim til sölu.

Reikna með að skipuleggendum sé samt sama þeir eru búnir að selja upp miðana og því áhættan lítil sem enginn hjá þeim en gæti verið meiri ef "litlar" þjóðir komast áfram og því ekki víst að miðar seldust upp.


mbl.is HM: Miðar á uppsprengdu verði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sálfræði stríðið byrjað

Danski þjálfarinn er byrjaður í sálfræði stríðinu, búa til svolítla grýlu úr okkar leikmönnum og hæla þeim aðeins til að gíra dönsku leikmennina upp og vonast sjálfsagt til að íslenska liðið gleypi þetta hrátt.

Maður er strax kominn með stress hnút í magann yfir leiknum og held ég að það verði ansi lítið um að vera á götum landsins þegar leikurinn fer fram. Eini gallinn að ég held að ég verði það stressaður að ég geti ekki horft á leikinn, þá er nú gott að eiga góða fjarstýringu til að flakka aðeins á milli stöðva - ÁFRAM ÍSLAND


mbl.is HM: Ísland er með frábæra leikmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Von á pening ?

Ætli við viðskiptavinir bankana eigum ekki von á glaðning í formi lækkaðrar vaxta og þjónustugjalda ? Eða skildu peningarnir rata frekar þangað þar sem meiri peningar eru - ekki þangað sem skuldirnar eru ?
mbl.is Samanlagður hagnaður viðskiptabankanna 163,7 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og heimurinn mun ekki verða samur...

Held nú að það sé ekki rétt, Vista er ágætt svo langt sem það nær og á eflaust eftir að færa þeim Redmond mönnum klink í kassann. Verður gamnn að sjá hvernig almenningur og fyrirtæki taka nýja stýrikerfinu, hef svo sem ekki séð auglýsta miðnæturopnun í BT eða öðrum verslunum svo menn geti tryggt sér Vistað.

Hef keyrt betur í hálft ár eða svo með hléum og endanlegu útgáfuna frá því að diskarnir með Vista upgrade duttu inn um bréfalúguna frá Microsoft. Er bara sáttur og segi það sama um Office 2007, ansi vel heppnuð útlitsbreyting þar og spái ég því að fyrirtæki uppfæri meira í nýja Office pakkann en Vista.


mbl.is Almenn sala á Windows Vista hefst á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband