Fifty fifty ?
29.1.2007 | 15:46
Held að ég verði að vera sammála danska sérfræðinginum honum Per Skaarup. Það má líka alveg snúa hugrenningum hans við og þegar hann talar um Dani þá setjum við Íslendingar í staðinn og svo öfugt. Þá kemur þetta þannig út að "það gætu liðið 10 ár þar til við fáum annað eins tækifæri á að komast í úrslitaleik HM"
Spurninginn er sú: Er okkar tími kominn ? Ef við klárum Danina þá hef ég fulla trú á því að við förum alla leið í úrslitinn.
![]() |
HM: Fyrrum Framarinn Per Skaarup hrósar íslenska liðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
z í ráði
29.1.2007 | 12:41
![]() |
Seta í indversku þróunarráði bundin við persónu Ólafs Ragnars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Meiri bjór
29.1.2007 | 11:52
![]() |
Meiri bjórsala í Þýskalandi á síðasta ári |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvar spilar þessi Grænlendingur ?
29.1.2007 | 09:04
![]() |
Guðjón Valur í 4.-5. sæti á markalistanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýr landsliðsþjálfari ?
29.1.2007 | 07:54
![]() |
Foster næsti landsliðsmarkvörður Englands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýtt afl = Frjálslyndi flokkurinn
28.1.2007 | 13:13
Heyrði smá af viðtalið við Margréti Sverrisdóttir í útvarpi allra landsmanna ofh. áðan. Hún heldur því fram að Nýtt afl sé búið að taka yfir Frjálslynda flokkinn, eflaust hefur hún rétt fyrir sér. En mér finnst flokkinn hafa sett niður að hafa svona mikinn glundroða á landsfundinum og leyfa það að menn séu að skrá sig fram yfir fyrr auglýsitan kosningatíma. Tala nú ekki um að telja ekki upp úr öllum kjörkössum og eins að menn hafi fengið að kjósa á meðan ennþá stóð yfir skráning nýrra félaga. Þetta gæti allt eins verið nýr farsi hjá Leikfélagi Akureyar
En stóri gallinn er hvað mig sjálfann áhrærir, mér var farið að lítast ágætlega á Frjálslynda flokkinn og mörg hans stefnumál, og álit mitt jókst þegar þeir þorðu að hefja umræðu um gengdarlausann innflutning á erlendu vinnuafli. Þeir náðu að mér fannst að dansa eftir línuni sem skilur að fordómalausa umræðu og fordóma.
En tvíeykið stóra Guðjón og Magnús virka nú ekki vel á mig og eins ef Nýtt afl er að taka flokkinn yfir þá er allt opið í því hvaða flokkur fær atkvæði mitt í vor.
![]() |
Kolbrún Stefánsdóttir kjörin ritari Frjálslynda flokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Penryn - við bíðum spennt
28.1.2007 | 09:51
Já alltaf góðar fréttir þegar áfangi næst í hönnun á örgjörvum, sérstaklega núna eftir að Vista kom á markaðinn. Vista er hægvirkara á minni tölvu en XP-ið var, og verður fróðlegt að sjá hraðamælingar þegar nýi Penryn kemur. Gott að AMD er þarna líka, alveg nauðsynlegt að hafa fleiri en einn framleiðanda að örgjörvum.
Annars fyrst ég minnist á Vista þá er ég bara nokkuð ánægður með endanlegu útgáfuna, nema IE7 og Vista eru ekkert rosalega happy saman í tölvuni hjá mér. IE7 virkaði mun betur í XP-inu gamla, á það núna til að lokast bara í miðju browsi á neinnar sýnilegrar ástæðu. Svo nægir að opna marga glugga í IE7 til að láta hann gefast upp, gæti verið resource vesen en hef ekkert nennt að spá í því.
![]() |
Hraðvirkari tölvuörgjörvar væntanlegir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spennan í hámarki
27.1.2007 | 15:23
Við bíðum spennt eftir niðurstöðu. Mun tvíeykið núverandi formaður og varformaður halda velli ?
![]() |
Mikill mannfjöldi á landsfundi Frjálslynda flokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ábyrgð stjórnenda
27.1.2007 | 09:05
Aldeilis er uppi typpið á "lögfræðingastóðinu" þessa dagana, Baugsmálið og núna er oliufurstarnir alveg saklausir að þeirra mati. Því það hafi verið svo ílla staðið að rannskókn málsins, lögreglubílar hafi keyrt of nálægt gangstétt fyrirtækjana eða kanski ekki alveg. En sum rök sem þeir færa fyrir því að það eigi að fella málið niður eru alveg ótrúleg og særa réttarkennd manns. Þó hefur maður stundum gjóað augum á amerískar lögfræðingasápur í sjónvarpinu og séð þar svona, og er alveg viss um að "lögfræðingstóðið" hérna heima hefur ekki misst af þætti.
Held að allur almenningur í landinu telji þegar fyrirtæki brýtur af sér þá hljóti stjórendur þess að bera ábyrgð, ef ekki hver þá ?
Það verður fróðlegt að fylgjast með þessum farsa næstu daga, og því miður grunar mann að peningarnir fái að ráða ferðinni einn einu sinni í bananalýðveldinu Íslandi.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Allt orðið til sölu í dag
27.1.2007 | 01:47
Já nýjasta tískan í dag er að eiga fótboltafélag, voru það Íslendingar sem hrundu æðinu af stað með því að kaupa Stoke um árið ?
Í það minnsta er enginn maður með mönnum í dag nema vera orðaður við kaup á ensku knattspyrnuliði. Mér myndi hins vegar nægja að kaupa mitt félag Þór en er að vísu hluthafi í einu stórliði á Bretlandseyjum, http://www.fc-utd.co.uk/ Er svo sem ekkert að hugsa um að taka það yfir en ég og Rebekka, prinsessan á heimilinu eigum hlut í sjóði sem var notaður til að berjast á móti kaupum Glazer. Hluti þess sjóðs var notaður í að stofna þetta nýja félag Football club United of Manchester sem spilar í deild sem er svo neðarlega að hún er eiginlega efst ef maður telur "hinumeginn frá"
![]() |
Amerískur auðkýfingur að íhuga tilboð í Liverpool |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |