Hvar var þessi flotta stöð sem skipti um nafn ?
31.3.2008 | 22:19
Já lýsi hér með eftir sýn eða stöð2sýn2 eða hvað hún heitir þarna sem telur sig bestu íþróttastöðina og þá hljóta þeir að vera með bestu íþróttafréttamennina eða hvað ?
Hvar var umfjöllun um leik Þórs og Keflavíkur sem fram fór í gær ? jú úrslitin voru talin upp eins og í leik hjá hvaða sveitaliði úti í heim ekki að þar hafi farið fram leikur í úrslitakeppni Iceland Express deildarinar sem þeir gera ágætlega í þar að segja ef leikirnir fara fram innan seilingarfjarlægðar frá höfuðstöðvunum ...
Skyldu þeir ekki vita að það eru til kvikmyndatökuvélar á Akureyri ?
Vonandi hafa þeir samt séð að Ríkissjónvarpið er búið að fatta það að hægt er að taka upp lifandi myndir á Akureyri árið 2008 og RÚV gerði leiknum betri skil en besta íþróttastöð í heimi og þeirra fylgifiskar.
Aular
Og svo til að undirstrika aulaskappinn þá var íþróttafréttamaður á stöð2 ( held að það heiti það ) að tala um að Totti verði ekki með í leiknum í meistaradeildini á Old Trafford sem fram fer þann 9. apríl ef menn voru ekki vissir.. hann veit kanski ekki að leikurinn á morgun er í Rom og Totti verður sennilega ekki með þar, en kanski veit hann meira en forráðamenn Roma um leikástand Totti fyrir seinni leikinn á Old Trafford þann 9. næstkomandi...
Ennþá meiri aular
KR tryggði sér oddaleik í framlengingunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Rúnar minn! Nafnaskipti breytir þessari stöð örugglega ekki baun í bala þegar fram líða stundir. Þetta er svipað og þegar sumir sem skipta um kennitölur á atvinnurekstri sínum aftur og aftur af því að þeir fara aftur og aftur á hausinn. Nafnaskipti, kennitöluskipti laga ekki neitt.
Páll Jóhannesson, 1.4.2008 kl. 07:45
Sammála, pointið var samt lélegur fréttaflutningur burtséð frá því hvað blessuð stöðin heitir, stendur efst í horninu 2sport hjá mér en þegar maður flakkar á digital myndlyklinum þá heitir hún sýn. Eðlilegt að maður ruglist á hvað hún heitir.
Rúnar Haukur Ingimarsson, 1.4.2008 kl. 08:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.