Samantekt á yfirliti um allar aðgerðir = lenging á snörunni
24.3.2009 | 14:05
Sé ekkert þarna sem hjálpar venjulegum heimilum sem eru með "venjulegar skuldir ( íbúðar og bílalán ) - einungis verið að lengja í snörunni og vona að almenningur geti lifað nógu lengi til að borga sem mest.
Eina raunhæfa leiðin er að fara í krónutölu lækkun á skuldum vegna íbúðarlána sem hækka og hækka og hækka og hækka. Ekki svo galin hugmynd að lækka þau um 4 milljónir per lán. Svo er líka hægt að færa þau til fyrri vegar ( fyrir hrun ) og afnema verðtrygginguna og hækka þá frekar vexti þannig að blessaðir fjármagnseigendurnir tapi ekki of miklu. Það er algjörlega 2007 að skuldarar beri einir alla áhættu af lántöku.
![]() |
Yfirlit um allar aðgerðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.