Er ekki hægt að fá Davíð Oddsson aftur ?
4.6.2009 | 12:04
Hvaða veruleikafyrrtu menn "búa" núna í seðlabankanum ? Er ekki málið að fá Davíð aftur ?
![]() |
Seðlabankinn einangrar sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Alveg bráðnauðsynlegt að fá manninn aftur. Þá getur hann fellt niður skuldir vina sinna - svona eins og hann felldi niður bindiskyldu íslenskra banka erlendis!
Og það EFTIR AÐ HANN VISSI AÐ ICESAVE VÆRI AÐ FARA MEÐ OKKUR TIL ANDSKOTANS!!
Svo getur hann haldið áfram að vöðla skuldum vina sinna í krónubréf og jöklabréf og selt á 1% að verðgildi!!!
"Flottur" maður Davíð en sefur væntanlega ekki vel.
Margrét (IP-tala skráð) 4.6.2009 kl. 12:20
Auðvitað á að fá hann til baka, reyndar hefði hann aldrei átt að fara.
En þessi Margrét hérna þarf nú heldur betur að þroskast, trúi varla að hún sé fermd !!!
Sigurður Sigurðsson, 4.6.2009 kl. 12:22
Nákvæmlega, ég vil fá Davíð aftur...eini maðurinn sem gat tekið ákvarðanir, og nákvæmlega átti aldrei að fara....og Davíð er FLOTTUR, tók ákvarðanir, og lét ekki aðra gera það fyrir sig(eins og peningablebbanefnd gerir nú) fyrir það var hann umdeildur....betra að geta tekið ákvarðanir og standa eða falla með þeim heldur en að vera undirlægja IMF...sem eru ekki að hugsa um okkar hagsmuni !
Sigríður (IP-tala skráð) 4.6.2009 kl. 12:48
Auðvita viljum við fá snillinginn okkar aftur,eini maður sem gat stjórnað þessu landi,svo við hefðum það gott,bestu árin mín,voru þegar hann stjórnaði þessu landi,enda fé hann þvílíkar hamingju óskir þegar hann hætti eftir að hafa stjórnað þessu landi í tólf ár,því miður þoldi þjóðin ekki það að Davíð færi frá,eins og sagan sýnir,landið hrundi,þegar konungur okkar hann Davíð Oddsson fór frá,þetta hljóta allir að sjá,svo var hann eini maðurinn með viti þarna hjá seðlabankanum,þetta mun allt koma í ljós þegar fram í sækir,og Margrét mín,þú ættir bara að gerast vinur Davíð Oddssona,það er allt lífið léttrý og hana nú,eitt má Davíð minn eiga,hann er vinur vina sinnar,eini maðurinn sem getur komið okkur upp úr þessum skít og kreppu,er að sjálfsögðu Davíð Oddsson,(það vantar bara orð Jóhönnu,MINN TÍMI MUN KOMA) ekki satt,HA HA HA HE.
kær kveðja.
konungur þjóðveganna.
Jóhannes Guðnason, 4.6.2009 kl. 13:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.