Morðtilraun ?
5.3.2007 | 19:55
Er þetta ekki bara tilraun til morðs og/eða sjálfsvígs ?
Er ekki löngu kominn tími til að stoppa þetta með því að þyngja refsingar, held að það sé það eina sem dugar. Því miður eru alltof margir ökumenn í umferðini sem halda að þeir séu einir í heiminum á þjóðveginu og þeir bara hafi hann út af fyrir sig.
Ég segi fyrir mig að ef svona vitleysingur myndi valda tjóni á einhverjum úr minni fjölskyldu og sleppa heill úr því þá myndi ég hugsa mig alvarlega um hvort ég myndi ekki gera "lesa honum pistilinn".
Mældist á 175 kílómetra hraða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála þér, það er nauðsynlegt að gera eitthvað róttækt í þessum málum. Sjálfur veit ég hvað er að lenda í slysi þar sem ekið er á "ofsahraða" m.v. aðstæður. Fékk eitt sinn einn á öfugum vegarhelmingi framan á mig í hálku ..... Ég ætti líklega að rifja þá sögu upp á blogginu mínu einhverntíma, á hana skrifaða eins og ég upplifði þá hluti fyrir réttum 8 árum síðan. "Man það reyndar enn eins og gerst hafi í gær og þegar ég hugsa um það nú þá er ekki langt síðan ég hætti að fá svona "flash back" og hrollinn sem fylgir því.
Hólmgeir Karlsson, 5.3.2007 kl. 21:16
Rétt í þann mund sem lögreglan var að skrifa niður nafn og númer geystist einn framhjá í 600 metra fjarlægð. Sá var á 240 kílómetra hraða. Sá má leika sér og fær til þess aðstöðu. Hann var á Cessna.
Birgir Þór Bragason, 5.3.2007 kl. 21:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.