Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007
Farinn í hundana
16.5.2007 | 10:43
Mourinho handtekinn eftir hundadeilur" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hafa hundspottin í spotta
14.5.2007 | 22:04
Kvartað undan lausagöngu hunda á höfuðborgarsvæðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Vinnerar og lúserar
13.5.2007 | 11:37
Þá er það komið á tært hverjir eru vinnerar og lúserar í kosningunum. Samt læðist að mér sá grunur að margir lúserar hafi unnið stóran varnarsigur eða hvað þetta heitir allt saman. Sumir hærri en í skoðanakönnun sem 600manns tóku þátt í og ansi margir tóku ekki afstöðu. Alltaf gaman að heyra afsakanir - enginn sem þorir að segja "Andskotinn við drullu töpuðum"
Lúserar:
- Framsókn -6%
- Samfylking -4,2 %
Vinnerar:
- Vinstri Grænir +5,5%
- Sjálfstæðisflokkurinn + 2,9%
Aðrir stóðu í stað eða komust ekki á blað, einfalt ekki satt ?
Ríkisstjórnin hélt velli með minnsta mun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Reiknar greynilega ekki með að vera lengur
11.5.2007 | 11:51
Finnst þetta ótrúlega heimskulegt hjá honum að hætta í enskunáminu. Sérstaklega þar sem tímabilinu er nú ekki ennþá lokið. Svo er það ekki til að hjálpa honum að komast að hjá liðum í englandi að vera hættur núna, flestir hefðu nú haldið áfram að komast inn í málið því miðið við hans hæfileika eru ábyggilega lið sem geta nýtt sér þá á Englandi ef West Ham vill ekki hafa hann áfram.
Tévez er hættur í enskunámi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kosningaloforð - ekki trúa þeim !
8.5.2007 | 23:38
Svo vill til að "pólitískt minni" mitt er ekki mikið en þar sem það tengist mér ansi mikið þá man ég eftir loforði oddvita allra flokka á Akureyri í aðdraganda síðustu bæjarstjórnarkosninga.
Íþróttafélagið Þór hélt opinn stjórnmálafund í félagsheimili okkar 27. apríl í fyrra, þar mættu allir fulltrúar framboðana:
- Jóhannes Bjarnason f. Framsóknarflokkinn.
- Oddur Helgi Halldórsson f. L- lista fólksins.
- Hermann Jón Tómasson f. Samfylkinguna.
- Baldvin Halldór Sigurðsson Vinstri Grænum.
- Kristján Þór Júlíusson f. Sjálfstæðisflokkinn.
Ein af spurningunum sem komu úr salnum á þessum fundi var hvort stæði til að skipta um gólfefni í íþróttahöllinni og svöruðu allir fulltrúarnir því játandi - þótti nánast sjálfsagt að það yrði ráðist í það verkefni og það strax.
Besta svarið var frá Baldvini fulltrúa Vinstri Grænna þegar hann svaraði fyrirspyrjanda á þessa leið:
,,Átti þetta að vera eikarparket Gummi minn?
En ástæða þessa hugleiðinga minna er svar núverandi bæjarstjóra Sigrúnar við fyrirspurn frá karfan.is - þar sem þeir spurðu um hvernig bæjarfélagið ætlaði að bregðast við nýrri reglugerð körfuknattleikssambandsins um að leikir í efstu deild skuli leiknir á parketi.
Svar Sigrúnar var á þessa leið:
Í nýjustu húsum Akureyrarbæjar hefur verið settur dúkur. En mönnum hefur greint á hvort parket eða dúkur sé hentugra gólfefni fyrir þá fjölbreyttu starfsemi sem er í þessum húsum. Miðað við þær fréttir sem berast nú frá Körfuboltafélögum og fyrirhugaðar sektargreiðslur fyrir að leika ekki á parketi þá er ljóst að bæjarfélagið þarf að endurskoða þessi mál. Íþróttahöllin hefur verið töluvert notuð í körfunni, við erum að ráðast í viðgerðir á þaki hallarinnar nú í sumar og síðan verður tekin ákvörðun um gólfefni. Það er engu að síður ljóst að parketgólf þar myndi skerða notkun hennar fyrir aðra starfsemi þannig að nauðsynlegt er að skoða málið í heild sinni og sjá hvar körfunni verður best komið fyrir. (tekið af karfan.is)
Er þá nema von að maður spyrji er eitthvað að marka kosningaloforð ? Sé í það minnsta ekki JÁ í þessu svari hennar.
Varla liðið nema ár síðan parketi var lofað og málið allt orðið ansi loðið.
Íþróttir | Breytt 9.5.2007 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hver verður númer x ?
8.5.2007 | 08:35
Nú styttist í innlit númer 30.000 á rausið mitt, gaman ef viðkomand skrifar athugasemd hérna eða skilur eftir innlitakvitt eða hvað það heitir eitt nýjasta orðið í blogheimum.
Annars smá kvart, sé að þegar maður skrifar færslu þá er komin villuleit sem er bara hið besta mál en hins vegar er tengill hérna fyrir neðan gluggann sem færslan er skrifuð í. Ekki smella á tengilinn fyrr en þið hafið vistað færsluna :-)
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 09:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Loksins búið að ákveða fyrir mig hvað ég á að kjósa
6.5.2007 | 15:58
Eða þannig. Rakst á atyglisverða heimasíðu xhvað.bifrost.is. Þar getur maður tekið smá próf/könnun á afstöðu til margra málefna og svo fær maður að vita niðurstöðuna á því hvaða flokkur samræmist best skoðunum manns.
Niðurstaðan mín var þessi:
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 43.75%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 20%
Stuðningur við Samfylkinguna: 37.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 12.5%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 52%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 50%
Svo það er "ljóst" að ég kýs Frjálslyndaflokinn
Eða hvað ? - held að ég sé ennþá jafn óákveðinn.
Bloggar | Breytt 8.5.2007 kl. 09:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Betri en Eiki ?
1.5.2007 | 14:14
Eiríkur er flottur - en þessi krakkar fara nú langt með að toppa kallinn
Ekki hrifnir af Eiríki og Valentine Lost | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)